Saga Club félagar geta safnað Vildarpunktum á margvíslegan hátt svo sem fyrir flug með Icelandair, vörur um borð, hótelgistingu hjá Booking.com, með kreditkortum sem bjóða upp á Vildarpunktasöfnun eða með fjölmörgum samstarfsaðilum Saga Club. Öll söfnun fer svo inn á Saga Club reikninginn þinn sem hægt er að skoða á punktayfirlitinu.
Félagar geta skráð Vildarpunkta allt að 12 mánuði aftur í tímann fyrir flug sem þeir hafa flogið og það sama á við um aðra vöru eða þjónustu sem veita Vildarpunkta.
Hægt er að lesa meira um þær söfnunarleiðir sem í boði eru hér að neðan.
Félagar í Saga Club safna Vildarpunktum og Fríðindastigum fyrir öll áætlunarflug Icelandair sem þeir fljúga og safna einnig Vildarpunktum þegar þeir nota Vildarpunkta í gegnum Punktar og peningar greiðsluleiðina sem er í bókunarvélinni. Saga Club félagar safna sama magni af Vildarpunktum og Fríðindastigum. Saga Silver félagar fá 10% álag á Fríðindastig og Saga Gold félagar fá 20% álag á Fríðindastig.
| Economy Light | Economy Standard | Economy Flex | Saga Premium | Saga Premium Flex | |
|---|---|---|---|---|---|
| Milli Íslands og Norður-Ameríku | 1200 | 2400 | 3600 | 4800 | 7200 |
| Milli Íslands og Evrópu | 850 | 1700 | 2550 | 3400 | 5100 |
Mundu eftir að skrá Saga Club númerið þitt við bókun svo að punktarnir skili sér inn á Saga Club reikninginn þinn.
Punktar eru skráðir inn á reikning félaga innan við 48 klukkustundum eftir að flugi lýkur.
Félagar geta skráð Vildarpunkta allt að 12 mánuði aftur í tímann fyrir flug sem þeir hafa flogið með Icelandair.
Icelandair flug merkt SAS flugnúmeri (t.d. SK 6150) á áætlunarleiðum Icelandair gefa hvorki Vildarpunkta né Fríðindastig hjá Saga Club. Sama á við um flug merkt FI flugnúmeri á áætlunarleiðum SAS, þ.e. félagar í Saga Club fá hvorki Vildarpunkta né Fríðindastig hjá Icelandair fyrir slík flug.
Saga Club félagar safna Vildarpunktum þegar þeir bóka hótel í gegnum hótelleit Icelandair sem er í boði Voyage. Hótelleitin bíður upp á hótel á öllum áfangastöðum Icelandair, sem og í flestum borgum um heim allan.
Þetta er svona einfalt:
Ef breyta þarf bókun eða spurningar koma upp, vinsamlegast hafið samband við Voyage.
Bílaleiguleitin bíður upp á bílaleigur á öllum áfangastöðum Icelandair, sem og í flestum borgum um heim allan.
Þetta er svona einfalt:
Ef breyta þarf bókun eða spurningar koma upp, vinsamlegast hafið samband við Voyage.
Saga Club félagar safna Vildarpunktum og Fríðindastigum af öllum vörum og veitingum um borð í Saga Shop Collection og Saga Shop Kitchen.
Mikilvægt er að framvísa Sagakortinu við kaupin. Félagar geta sótt um Sagakort inn á Saga Club reikningnum, hægt er að skrá sig inn hér í hægra horninu á síðunni.
| Verðflokkur í ISK | Vildarpunktasöfnun og Fríðindastigasöfnun |
|---|---|
| 1 - 2.000 | 100 |
| 2.001 - 5.000 | 200 |
| 5.001 - 10.000 | 300 |
| 10.001 - 20.000 | 700 |
| 20.001 - 30.000 | 1.700 |
| 30.001- 40.000 | 2.500 |
| 40.001 - 50.000 | 3.500 |
| 50.001 - 60.000 | 5.000 |
| 60.001 - 300.000 | 6.000 |
Saga Club félagar safna nú Vildarpunktum ásamt Fríðindastigum fyrir öll flugfargjöld hjá Air Iceland Connect.
Söfnunin er eftirfarandi fyrir hvern floginn fluglegg á öllum flugum innanlands og til Grænlands:
Einnig safna félagar Vildarpunktum við bókun á bílaleigubílum og hótelum í gegnum vef Air Iceland Connect.
Hér eru upplýsingar um söfnun Vildarpunkta sem var í gildi til 7. janúar 2019 fyrir hvern floginn fluglegg á öllum flugum innanlands og til Grænlands:
Félagar í Icelandair Saga Club safna bæði Vildarpunktum og Fríðindastigum í Saga Club fyrir flug með Alaska Airlines. Alaska Airlines býður upp á áfangastaði á fjölmörgum stöðum í Bandaríkjunum, þ.á.m. Hawaii og einnig í Kanada og Mexíkó. Mileage Plan félagar hjá Alaska Airlines safna bæði Bonus Miles og Elite Miles þegar þeir fljúga með Icelandair.
Söfnun Saga Club félaga á Alaska Airlines flugum, Vildarpunktar og Fríðindastig:
| Economy | Economy Y | First | |
|---|---|---|---|
| S, B, M, H, Q, L, V, K, G, T, R, U |
Y | F, P | |
| Flugleiðir styttri en 800 mílur | 800 | 1000 | 1200 |
| Flugleiðir frá 801 - 1200 mílum | 1000 | 1250 | 1500 |
| Flugleiðir frá 1201 mílum eða lengri | 1500 | 1875 | 3750 |
*1 míla jafngildir u.þ.b. 1,6 km.
Athugið að Vildarpunktar safnast ekki ef flogið er á eftirtöldum bókunarklössum hjá Alaska Airlines: A,D,E,N,O,W,X og Z.
Icelandair Saga Club félagar safna bæði Vildarpunktum og Fríðindastigum í Saga Club fyrir flug með JetBlue. Saga Silver félagar fá 10% álag á Fríðindastig og Saga Gold félagar fá 20% álag á Fríðindastig.
TrueBlue félagar hjá JetBlue safna TrueBlue punktum þegar þeir fljúga með Icelandair.
Engin fríðindi svo sem aðgangur að Betri Stofum eða uppfærslur eru hluti af þessu samstarfi.
Í bókunarvél Icelandair er fellistika þar sem hægt er að velja hjá hvaða flugfélagi þú vilt safna. Félagar í Saga Club safna Vildarpunktum og Fríðindastigum sem hér segir þegar þeir fljúga með JetBlue:
| Economy | Economy Y | Mint | |
| Z, O, U, S, P | Y, E, K, H, Q, B, L, V, R, W, M | J, C, D, I | |
| Leið styttri en 800 mílur | 500 | 500 | 625 |
| Leið frá 801 - 1200 mílum | 600 | 1200 | 1500 |
| Leið frá 1201 mílum | 700 | 1400 | 1750 |
Nauðsynlegt er að skrá Sagakortsnúmerið í bókun til að Vildarpunktar og Fríðindsastig safnist fyrir flugið. Athugið að Vildarpunktar og Fríðindastig safnast ekki ef flogið er á eftirtöldum bókunarklössum hjá JetBlue: X, T, N, ZCERT.
Dvöl á Icelandair hótelunum gefur Saga Club félaga 600 Vildarpunkta fyrir hverja nótt.
Saga Club félagi þarf bæði að vera skráður fyrir herberginu ásamt því að gista í því.
Til þess að Vildarpunktar skili sér á Saga Club reikning klúbbfélaga er best að láta skrá Sagakortsnúmerið við bókun á herberginu. Einnig er hægt að framvísa Sagakortinu við innritun á hótel.
Ef Vildarpunktar fyrir hótelgistingu á Icelandair hótelum skila sér ekki á Saga Club reikninginn þarf að senda afrit af hótelreikningi ásamt Sagakortsnúmeri til Saga Club, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík eða með því að senda okkur línu.
Dvöl á Eddu hótelunum gefur Saga Club félögum 600 Vildarpunkta fyrir hverja nótt.
Þetta er óháð því á hvaða vikudegi og hvaða tíma ársins er gist.
Saga Club félagi þarf bæði að vera skráður fyrir herberginu ásamt því að gista í því.
Nauðsynlegt er að skrá Sagakortsnúmer við bókun svo Vildarpunktar skili sér á Saga Club reikning viðkomandi.
Ef Vildarpunktar fyrir hótelgistingu á Eddu hótelum skila sér ekki á Saga Club reikninginn þarf að senda afrit af hótelreikningi ásamt Sagakortsnúmeri til Saga Club, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík eða með því að senda okkur línu.
Félagar í Icelandair Saga Club safna Vildarpunktum þegar þeir bóka hótel í gegnum hótelleit Icelandair hotels.icelandair.com sem er í boði Booking.com.
Fyrir hverja evru sem þú greiðir færðu 2 Vildarpunkta sem skráðir verða á Saga Club reikninginn þinn um það bil 60 dögum eftir dvölina.
Booking.com sem er leiðandi á heimsvísu í gistimöguleikum á netinu og þar er í boði:
Ef Vildarpunktar fyrir gistingu sem bókuð er á hótelleit Icelandair skila sér ekki á Saga Club reikninginn þinn, vinsamlega hafðu samband við okkur. Fjöldi Vildarpunkta sem safnast fyrir hótelbókun eru reiknaðir í evrum og miðast því við upphæð hótelbókunar í evrum.
Í hverjum mánuði safna tugir þúsunda félagar okkar Vildarpunktum á Olís og ÓB enda eru þeir á meðal okkar vinsælustu samstarfsaðila.
Saga Club félagar safna 15 Vildarpunktum fyrir hverjar 1.000 krónur á öllum Olís og ÓB stöðvum og fá þeir punkta fyrir alla verslun
Félagar safna Vildarpunktum Icelandair á öllum þjónustustöðvum Olís og ÓB, hvort sem þeir greiða með korti eða peningum. Þannig að í hvert sinn sem þú átt í viðskiptum við Olís og ÓB safnar þú Vildarpunktum.
Ef greitt er með kreditkorti sem safnar Vildarpunktum Icelandair skrást Vildarpunktar sjálfkrafa þess vegna er sniðugt að tengja ÓB lykilinn við Vildarpunkta kreditkortið þitt. Ef greitt er með öðrum kreditkortum eða peningum - Þá þarf að framvísa Sagakorti Icelandair.
Þú færð líka Vildarpunkta þegar þú notar sjálfsalann
Á öllum þjónustustöðvum Olís/ÓB liggja fyrir upplýsingar um hvernig þú getur safnað Vildarpunktum þegar þú notar sjálfsalann
Icelandair Saga Club félagar safna Vildarpunktum þegar þeir leiga bíl í gegnum bílaleiguleit Icelandair, sem er í boði Rentalcars.com.
Fyrir hverja evru sem þú greiðir færðu 2 Vildarpunkta sem verða skráðir á Saga Club reikninginn þinn um 60 dögum eftir skil.
Rentalcars.com er leiðandi bílaleiguþjónusta á netinu:
Þetta er svona einfalt:
Ertu ekki Saga Club félagi? Skráðu þig hér.
Ef Vildarpunktar fyrir bílaleigu sem bókuð er á bílaleiguleit Icelandair skila sér ekki á Saga Club reikninginn þinn, vinsamlega sendu okkur afrit af reikningnum. Athugið að fjöldi Vildarpunkta sem safnast eru reiknaðir í evrum og miðast þess vegna við upphæð leigunnar í evrum.
Félagar í Saga Club safna Vildarpunktum í hvert skipti sem þeir leigja bíl hjá Hertz bílaleigu. Félagar safna annaðhvort 1.000 eða 2.000 Vildarpunktum fyrir hverja leigu, allt eftir því hvaða bílaflokk þeir leigja. Félagar sem leigja í langtímaleigu fá leigusamninginn endurnýjaðan hver mánaðarmót og fá þá nýja Vildarpunkta í hvert skipti. Allar nánari upplýsingar um Hertz
Lesa nánar söfnun hvers bílaflokks
Icelandair Saga Club félagar safna einnig 1.000 eða 2.000 Vildarpunktum með hverri bílaleigu í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada. Vildarpunktafjöldinn sem safnast fer eftir stærð bíla. Mikilvægt er að muna að setja inn Sagakortsnúmerið í bókuninni til þess að safna Vildarpunktunum.
Nauðsynlegt er að framvísa Sagakortinu á leigustað til að Vildarpunktar skili sér á Saga Club reikning viðkomandi. Ekki er hægt að óska eftir punktaskráningu eftirá.
Bókaðu Sixt bílaleigubíl á heimasíðu Sixt
Fyrir hefðbundna leigu eru veittir eftirfarandi Vildarpunktar:
Fyrir langtímaleigu hjá Sixt á Íslandi eru veittir eftirfarandi Vildarpunktar:
Nánari upplýsingar í síma 540-2222.
Saga Club félagar safna 2.300 Vildarpunktum fyrir hverja ferð sem er bókuð í gegnum vefsíðu VITA frá og með 1. janúar 2020. Fyrir ferð sem er bókuð fyrir þann tíma safnast 2.500 Vildarpunktar. Það getur tekið 6 - 8 vikur að fá punktana inn á Saga Club reikninginn frá ferðinni. Ef punktar skila sér ekki á Saga Club reikninginn innan þess tíma þarf að hafa samband við VITA í síma 570-4444 eða með því að senda póst á info@vita.is.
Félagar í Icelandair Saga Club safna Vildarpunktum þegar þeir bóka ferð í gegnum ferðaleit Icelandair sem er í boði GetYourGuide.com.
Fyrir hverja evru sem þú greiðir færðu 2 Vildarpunkta sem skráðir verða á Saga Club reikninginn þinn.
Hjá Get Your Guide getur þú bókað yfir 30 þúsund spennandi hluti til að gera á ferðalögum þínum um heiminn og fyrirtækið tryggir lægsta mögulega verð.
Gray Line Iceland rekur Airport Express sem bíður upp á rútuferðir á milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar. Fyrir ferð til eða frá Keflavíkurflugvelli eru veittir 200 Vildarpunktar ef ferðin er bókuð á vefsíðu Airport Express.
Ferðin kostar frá 3.00 krónum á mann ef keypt er önnur leiðin en frá 5.900 krónum ef báðar leiðir eru keyptar.
Ekki eru veittir Vildarpunktar ef bókað er á annan hátt eða ef ferðin er ekki bókuð fyrirfram.
Ef Vildarpunktar skila sér ekki á Saga Club reikninginn þarf að hafa samband við Gray Line Iceland í síma 540-1313 eða senda póst á netfangið iceland@grayline.is.